Gaman að sjá þig !





Ég er fluttur Hingað !!!
































































































} -->

* hjálmar-hjálma-hjálmum-hjálma *
Læt þessa gagnrýni um hljómsveitina Hjálma, sem birtist í fréttablaðinu 8.sept...Í von um að þeir sem haldi annað, taki sér tak&hlusti betur......


EIN BESTA PLATAN Í ÁR
....
PLÖTUDÓMUR: Hljómsveitin Hjálmar
lét fyrst að sér kveða með laginu
Bréfið sem hefur ómað af og til í
útvarpinu í sumar. Hjálmar leika
reggí og státa af söngvara sem
skipar sér í hóp þeirra bestu með
þessari plötu, Hljóðlega af stað.
Platan er frá upphafi til enda
mikið ævintýri og mega orð sín
lítils til að lýsa innihaldi hennar.
Lagið Jamm og jú er stutt kynningarlag
en við tekur Borgin sem
hefur plötuna til hærra flugs.
Tilfinningaþrunginn söngur Þorsteins
Einarssonar er slíkur að
undirritaður klökknaði við fyrstu
hlustun. Ekki skemmir fyrir að
Þorsteinn er lunkinn textasmiður
og fjallar mikið um fyrirheitna
landið í sköpun sinni. Sannfæringin
er sterk í söngnum og er ég
ekki frá því að kappinn hafi
fengið að gægjast inn í landið
eftirsótta miðað við þá innlifun og
kraft sem drýpur af frammistöðu
hans. Söngstíll hans inniheldur
sterk áhrif úr sálar- og blústónlist,
sem hentar reggíinu vel.
Hljóðlega af stað er þó ekki
alvaran ein sem heyrist best í
Kindin Einar. Þar syngur orgelleikari
hljómsveitarinnar, Sigurður
Guðmundsson, á spaugilegan
hátt um fyrrnefnda kind sem
verður fyrir barðinu á rútu. Það
brýtur plötuna skemmtilega upp.
Gripurinn er í raun óaðfinnanlegur
og ber þess greinilega
merki að liðsmenn Hjálma hafi
unun af því sem í gangi er. Þá er
óhjákvæmilegt að hrósa hljómsveitinni
fyrir töluverða fjölbreytni
í sköpuninni og sterkur
karakter einkennir hvert lag,
sem gerir plötuna enn betri.
Lög eins og Bréfið, frumsamið
lag Þorsteins við ljóð
Einars Georgs Einarssonar,
Lindin og Borgin, eru í sérstöku
uppáhaldi af annars mjög heilsteyptri
frumraun frá Hjálmum.
Ég fulllyrði að Hljóðlega af
stað verði ein besta plata þessa
árs þegar upp er staðið og hvet
ég lesendur til að fylgja Hjálmum
um hvert fótmál. Fullt hús
stiga.