*
Oft verða slökkviliðsmenn logandi hræddir
*
Eitt stendur uppúr eftur meðgönguna&fæðinguna......Það er það að flestir sem ég þekki sem eru búnir að eiga börn nýlega eru búnir að vera að segja miklar hræðslusögur varðandi allt þetta.....Erfiðar fæðingar, miklar andvökunætur &s.fr.....Ég hef reyndar allt aðra sögu að segja.....Okkar fæðing var í einu orði sagt ótrúleg, &höfðu allir orð af því sem stóðu að henni hvað þetta var góð fæðing, &mikið hissa að þetta hafi verið fyrsta........&svo þegar við tölum við foreldra okkar þá skýrist þetta kannski örlítið....Mamma segir að það hafi aldrei heyrst neitt í mér, &ég hafi verið algjört englabarn, hvað svefn&annað varðaði, en hins vegar þegar ég fór að stækka þá hafi ég aðeins látið taka eftir mér.....En þá alltaf þannig að það vissi enginn af því fyrr en of seint......t.d einu sinni í leikskólanum þá hafi verið hvíldartími, &allir verið sofandi nema ég, sem var frammi að mála allt blátt......&svo einu sinni þegar við vorum í tjaldferðalagi öll fjölskyldan, &mamma&pabbi voru búin að finna góðan tjaldstað upp við á......&þau voru semsagt að taka útúr bílnum, en á meðan stóð ég hinu megin við bílinn&kastaði öllu jafnóðum út í ánna........&svo segir mamma hennar Gógó að það hafi aldrei heyrst múkk í henni, reyndar kom ein nótt, en ekki meir......Svo var hún svo prúð lítil stelpa, eyddi öllum sínum tímum í að lesa bækur, &í öllum barnaafmælum&veislum þá hvarf hún alltaf inní herbergið með flestu bókunum&las allan tímann......Nú hefur sú litla hjá okkur, ekki látið heyra í sér.....&ljósmóðirin var eiginlega bara mjög hissa á því hvað gengi vel, sofið allar nætur, &drukkið eins&kálfur......Nú er bara að vona að hún verði ljúflingurinn sem mamma hennar var, &að þetta sé ekki bara lognið á undan storminum.......
Ljós mitt skein. kl:11:25